Jarđaför
Hún langamma mín kvaddi þennan heim á aðfaranótt mánudags, og var jarðaförin í gær, mjög falleg athöfn.
Komumst að því að hún var komin með 97 afkomendur með 3 á leiðinni þannig skemmtilegt að þeir séu að komast upp í 100.
En já var matarboð hjá ma og pa í kvöld þar sem systkini hans pabba voru öll í bænum gaman að hittast öll saman þó það hafi ekki verið það skemmtilegustu aðstæður í heimi.
En já lítið annars að frétta geri lítið annað enn að vinna á fullu í toysrus en það er fínt.
Sigrún Hildur kom með börnin í bæinn um daginn, æðislegt að hitta hana kíktum á lífið á laugardagskvöldið en hrikalegt ástandið í bænum, enda bíladagarnir vitum hvernig þeir voru, en já var síðan að passa Öldu og Kára fyrir hana á 17 júní svo hún kæmist í útskriftina hjá Joey systir sinni.
En já ekki meira að sinni.
Í tilefni dagsins...
Jæja smá blogg í tilefni dagsins í dag... er það ekki.
Byrjuð að vinna í Toys´R´us klikkað að gera fyrstu opnunarhelgina, já alveg nóg að gera fram að því byggðum upp verslunina á tveimur og hálfri viku, þannig nóg að gera fram að því.
Fór suður að vinna í eina og hálfa viku í versluninni í Rvík leist bara mjög vel á það þar. Var mjög fínt vorum á Hóteli og alles fékk síðan bílinn hjá Sigrúnu þannig að við komumst mjög vel á milli staða.
Síðan var litli skírður þann 18 mars fékk nafnið Haukur Arnar Ottesen Pétursson ekkert smá gaman amma kom frá Rvík og allt vildi ekki missa af þessu, komu örugglega hátt í 40 manns.
Bryndís og litli Haukur Arnar braggast vel hann stækkar og stækkar orðin ekkert smá sætur og stór, farinn að halda haus og allt, ekkert smá krúttlegur.
En jæja ætla að fara að baka.
Later
kvitt
Mig er nú farið að langa í kvitt, komu yfir 20 manns á síðuna í gær og klukkan er hálf tólf og fimm manns búnir að koma inn en.
Lítill frćndi fćddur
Já það var víst jafnt í skoðunarkönnunni minni þannig helmingurinn giskaði rétt, og já það var rétt í sónarinum, þannig það er bara gott hægt að draga fram þetta bláa sem búið var að kaup á snáðann .
En já er komin með nýja vinnu er hætt þessari vaktavinnu í bili, já þið getið hitt mig í leikföngunum hjá Toys´R´us en ég er að fara að vinna þar þegar nýja glerártorg opnar.
En já meiri fréttir síðar
Jćja
Tveggja daga páskafrí búiđ....
Elín kom síðan í bæinn með litla strump og alveg ótrúlegt hvað hann er orðinn stór, kíktum á þau til Göggu í smástund, síðan var matur hjá ma&pa á páskadag í hádeginu og hjá Göggu um kvöldið þannig að maður er búin að éta nóg núna um páskana sérstaklega þar sem maður fékk nú 4 egg, aðeins of mikið.
Síðan er bara beðið eftir bumbubúanum en Bryndís ætlar að reyna að halda honum inn í sér allavega í 3-6 daga í viðbót þar sem að hann Gauti þurfti að fara á seinasta túrinn fyrir frí, frekar mikið stress að hann nái ekki heim.
En annars gott í bili, ætla að halda áfram að vinna.
Páskar
Lítið að frétta alltaf að vinna er að fara í tveggja daga páskafrí í dag fram á sunnudag, já ég veit geggjað langt, en já fullt af fólk að koma í heimsókn.
Elín, Gísli og Viktor eru að koma, síðan kemur Sigrún mín með sína grislinga, síðan er Gunni og Ragga hér með strákana í fjallinu þannig nóg að gera í heimsóknum.
Sigrún mín hin kom ekki um daginn eins og planað var, náði að detta fram fyrir sig og brjóta á sér hnéskelina, getur ekki hafað verið gott. Þannig við verðum að taka djamm síðar.
En já Eva María frænka Braga var að eignast strák í vikunni þannig að hún Bryndís mín er bara næst styttist óðum í þetta tvær og hálf vika, þá er bara spurning hver lokar þrenningunni með þeim tveim, það kemur víst alltaf þannig upp í fjölskyldunni hjá Braga og Gauta að það fæðast alltaf 3 börn í einu eða á svona 2 ára tímabili þannig spurninginn er hver kemur með seinasta hjá þeim. eitthvað voða mál.
En já hvað kyn haldiði að þetta sé, ha það verður forvitnilegt.
En já nóg í bili næst fréttir af ófæddu Pétursbarni Ottesen .
Back home
Lína segir að ég eigi að vera duglegri að bloggar þar sem ég vinn við tölvu þannig hér kemur annað í sama mánuði.
Það er akkúrat einn og hálfur mánuður í hana Bryndísi mína og bumbuna og að því var mikið eytt í hana út í London.
Fór í mothercare keypti alveg helling af samfellum á svo gott sem er engan pening og æðisleg náttföt hana bumbubúa... Svo var bara stefnan tekin á Disneybúðina þar sem ég hefði getað misst mig( auðvitað disney) geggjaðir bangsarnir veit ekki hvað ég var lengi þar inni sá reyndar hrikalega sundboli merkta prinsessunum í disney þar sem efnið var gott sem er ekkert búið að skera úr hér og þar og þetta var fyrir stelpur 3-5, og já ég er ekki alveg að fatta þetta með high school musical dæmi það var allt í því úti. En ég fann smá dót í dinsey búðinni og eitthvað sætt fyrir Bryndísi og bumbubúa.
En það var ágætt í London gerði mjög lítið nema fara á Oxford street og ná mér í einar 7 stykki blöðrur undir lappirnar gat ekki gengið á laugardagskvöldið á sjálfri árshátíðinni sem var góð Björgvin Franz algjör snillingur, maturinn lala, en annars vel heppnuð.
Sunnudagurinn byrjaði með því að vera með lappirnar upp í loft makaðar í aloe vera geli aðeins að kæla þær niður. Fór síðan í Hide Park þar sem ég og Elsa löppuðum að minningareitnum hennar Diönu prinsessu mjög flottur og fínn og svona settlegur setti flottan svip á garðinn.
Síðan var leitað að Peter Pan styttunni sem mig langaði svo að sjá, enda ógeðslega flott úr brons og alles.
Fór síðan á Oxford street haltraði glæsilega um var í svona engu verslunarstuði en fór í La senza þar sem ég missti mig aðeins enda ekkert smá ódýrt miðað við hér heima.
Fór síða um kvöldið og rölti um einhvers konar markað og ótrúlegt allt í Diönu og William manni fannst það nú frekar leiðinlegt fyrir Harry hann fékk einn og einn hlut og það var til að deila með bróður sínum, ótrúlegt.
En já nóg í bili ætla að fara að vinna og gera eitthvað gagn hérna.
London
Datt svona í hug að setja smá blogg hér inn og þá aðallega til að segja að ég er að fara til London.
Eða eins og Sigrún frænka segir taka Joey á þetta, LONDON BABY.
En já lítið í fréttum bíð bara eftir að verða móðursystir þessa dagana, innan við tveir mánuðir í þetta alltof skrítið að litla systir manns sé að verða mamma, mér finnst ég vera gömul
rosa skrítið.
En ekki meira í dag nema það að ég er að fara til London
Komin tími til...
Já ætli það sé ekki löngu komið blogg fyrir hana Bryndísi mína, já það nýjasta er að ég hætti í olís og svara núna í símann hjá www.ja.is, ég keypti mér nýjan bíl er komin á nýja Hondu Accord sport S.E., þannig allt að gerast
.
Jólin að koma, komin í smá jólskap enda get ég gert mína íbúð fína um jólin, var frekar skrautleg í fyrra, er reyndar að vinna mikið um jólin en er í frí á aðfangadag og jóldag þannig það sleppur
.
Já jólainnkaupin eru búin nema hún litla stubban mín, Bryndís óskalista núna, ekki nóg með að maður þarf að kaupa jólgjöf heldur afmælisjöf líka
.
Já fór suður í smá verslunarferð um helgina, fórum á föstudag um kvöldmat og komum til baka um 10 á laugardagskvöld, bara smá stop,reyndar var reynt að halda því fram að við værum klikkuð erum ekki sammála var bara smá vont veður, og já hvað er málið með veðrið, getur ekki verið smá gott veður svona fyrir jólin. Voru reyndar allir ættingjar með áhyggjur af okkur á þessum þvæling, ákváðum að segja ekki frá því fyrr en að við vorum komin suður að við vorum inn á þvílíku eldingasvæði á holtavörðuheiðinni og í hrútafirðinum sáum hverja á fætur annari reyndar geðveikt flott, enn heyrðum reyndar ekki í þrumum.
En já náðum að versla allar jólagjafir í Reykjavik þannig fínt mál erum alveg fullsett, NEMA fyrir hana Bryndísi mína, já þú ert hausverkur, en ætla að halda áfram í vinnunni vona að þetta sé nóg fyrir þig í bili.
Jólakveðja
Hildur
